Sumarnámskeið í golfi

Skráning fer fram hér:
Mótaskráin verður með svipuðu sniðu og síðust ár.
Sömu mót og kylfingar kannast við. Ein merkjanleg breyting er að Meistaramótið er fært aftar, klárast um aðra helgi í júlí í stað þeirrar fyrstu eins og venjan hefur verið.
Hamraborgarmótaröðin hefst um leið og völlur opnar. Það verður í höndum veðurguða sem vonandi verða okkur hliðhollir. Verður tilkynnt þegar þar að kemur.
Mótaskránna er að finna undir mót hér á síðunni eða bara hér:
Síðasta og skemmtilegasta mót ársins fer fram á laugardaginn. Bændaglíman. Mótið hefst kl. 17.00 og venju skv. gerum við okkur glaðan dag að móti loknu. Skráning og upplýsingar um mótið hérá Golfbox.
https://golfbox.dk/livescoring/tour/?language=1039#/competition/5027267/info
Minnum á að 18 ára aldurstakmark er í mótinu.
Kylfingar hvattir til að skrá sig tímanlega til að auðvelda undirbúning.
Hamraborgarmótaröðin er þó enn í gangi og verður eitthvað áfram eða eins lengi og veður leyfir. Ath að búið er að færa mótin til 17.00 sökum birtuskilyrða.
Spennan er í algleymingi en Villi Matt er með eins stigs forystu á Pétur Kristjánsson. 9 bestu mótin telja og eiga fleiri kylfingar möguleika á að ná þeim félögum.
HG mótið fór fram á Tungudalsvelli um helgina. 44 keppendur tóku þátt. Keppt var í karla-, kvenna-, unglinga-og opnum flokki í punktakeppni.
Sigurvegarar voru:
Karlaflokkur: Ásgeir Kristjánsson eftir bráðabana við Julo Rafnsson og Baldur Inga Jónasson en allir léku þeir á 76 höggum.
Kvennaflokkur: Sólveig Pálsdóttir GÍ á 90 höggum
Unglingaflokkur: Tómas Orri Baldursson GÍ á 39 punktum.
Punktakeppni: Unnsteinn Sigurjónsson GBO á 38 punktum.
Heildarúrslit í mótinu er síðan hægt að nálgast hér:
https://golfbox.dk/livescoring/tour/?language=1039#/competition/5027270/leaderboard/4583534
Þar sem þetta var síðasta mót sumarsins í Sjávarútvegsmótaröðinn þá liggja úrslit fyrir í mótaröðini
Sigurvegarar árið 2025
Karlaflokkur: Julo Rafnsson GÍ 8.492 stig
Kvennaflokkur: Björg Sæmundsdóttir GP 8.677 stig
Unglingaflokkur: Sigurður Olgeirsson GBO 9.547 stig
Punktakeppni: Tómas Orri Baldursson GÍ 5.179 stig
Lokaniðurstöðuna í öllum flokkum má nálgast á hér á heimasíðunni undir mót.
Tvö mót voru í Sjávarútvegsmótaröðinni um helgina, Jakob Valgeir mótið var í Bolungarvík á laugardeginum og Hampiðjumótið á Ísafirði á sunnudegi.
Sigurvegarar í Hampiðjumótnu voru:
Karlaflokkur Julo Rafnson á 71 höggi
Kvenaflokkur Björg Sæmundsdóttir á 87 höggum
Unglingaflokkur Tómas Orri Baldursson á 45 punktum (Pétur Kristjánsson lek einnig á 45 punktum en var verri á seinni 9)
Punktaflokkur Benedikt Jóhannsson á 43 punktum
Reyndar fengu Tómas og Pétur fleiri punkta en eingöngu var hægt að vinna í einum flokki.
Nánari úrslit í mótinu er svo hægt að nálgast á Golfbox, sama með Jakob Valgeirs mótið í Bolungarvík.
Eftir mót helgarinnar eru línur farnar að skýrast í mótaröðinni þó svo töluverð spenna sé fyrir lokaumferðina. Eftsu menn eru:
Karlaflokkur Julo Thor Rafnsson
Kvennaflokkur: Sólveig Pálsdóttir
Unglingafl: Sigurður Hólmsteinn Olgeirsson
Punktafl: Sigurður Hólmsteinn Olgeirsson
Eingöngu er hægt að fá verðlaun í einum flokki svo líklegt er að aðrir en unglingar sigri í punktakeppninni en unglingarnir okkar raða sér í efstu sætin í punktakeppninni, verulega jákvætt.
Annars má finna heildarstöðuna í mótaröðinni hér á heimasíðu okkar:
Um liðna helgi lauk meistaramóti GÍ 2025. Keppt var í 7 flokkum og urðu sigurvegarar sem hér segir:
1. flokkur kvenna Bjarney Guðmundsdóttir
2. flokkur kvenna Brynhildur Benediktsdóttir
1. flokkur karla Jón Hjörtur Jóhannesson
2. flokkur Karla Jakob Tryggvson
3. flokkur karla Anton Freyr Traustason
Unglingaflokkur Grétar Nökkvi Traustason
65 ára og eldri Óðinn Gestsson
Nánari úrslit og árangur kylfinga má sjá hér á golf.is
https://golfbox.dk/livescoring/tour/?language=1039#/competition/5027203/results
Myndir af sigurvegurum hvers flokks fylgja fréttinni.
Hjálmar Jakobsson gerði sér lítið fyrir og fór hölu í höggi á 16. braut á 1. hring, vel gert Hjálmar
Guðmundur Shiransson sigraði í Landsbankamótinu.
Skráning stendur yfir í holukeppni GÍ, skráningum fer að ljúka
Hamraborgarmótaröðin i fullum gangi
Sjávarútvegsmótaröðin að fara af stað.
Það er ekki seinna vænna að halda opnunarmót nú þegar kylfingar eru búnir að spila í nokkrar vikur.
Á sunnudaginn kemur kl. 10.00 verður 18 holu Texas Scramble mót. Hvetjum kylfinga að skrá sig tímanlega til leiks.
Skráning á golfbox.