Saga

Saga

Golfklúbbur Ísafjarðar var stofnaður árið 1943 og er á meðal elstu golfklúbba landsins.

Það gekk ekki vel að finna landsvæði undir golfvöll á upphafsárum GÍ og eftir að landi var úthlutað undir flugvöll í stað golfvallar má segja að starfsemi GÍ hafi lagst af.

Árið 1978 var klúbburinn endurreistur og GÍ kom sér upp bráðabirgðavöllum á nokkrum stöðum áður en land fékkst undir núverandi völl GÍ árið 1985.

Frá þeim tíma hefur mikil uppbygging átt sér stað á Tungudalsvelli sem er í dag mjög skemmtilegur og fjölbreyttur níu holu golfvöllur. Umhverfi vallarins er einstakt eins og sjá má á þessum myndum.

Við Tungudalsvöll er glæsilegt klúbbhús sem var flutt á svæðið frá Hnífsdal og tekið í notkun árið 1999.

Mikið og gott útsýni er úr golfskálanum yfir Tungudalsvöll og þar er tilvalið að tylla sér niður með kaffibollann eftir golfhring á skemmtilegum velli.

Stjórnarformenn GÍ

Nafn Tímabil formennsku
Margrét Árnadóttir 1978-1979
Sigurður Jónsson 1979-1980
Guðni Ásmundsson 1980-1982
Hafsteinn Vilhjálmarsson 1982-1985
Samúel Einarsson 1985-1989
Ernir Ingason 1989-1996
Tryggvi Guðmundsson 1996-2006
Tryggvi Sigtryggsson 2006-2015
Kristinn Þórir Kristjánsson 2015-2019
Jakob Ó. Tryggvason 2019-