Sjávarútvegsmótaröðin komin í gang - Íslandssögumótið fer fram á Ísafirði um helgina
Um liðna helgi fóru fyrstu tvö mótin fram í Sjávarútvegsmótaröðinni. Oddamótið á Patreksfirði og Arnarlaxmótið á Bíldudal.
Í Oddamótinu unnu:
Karlaflokkur: Guðmundur Albertsson, GBO eftir bráðabana við Ásgeir Kristjánsson GÍ, léku á 72 höggum
Kvennaflokkur: Björg Sæmundsdóttir GP á 86 höggum
Unglingaflokkur: Pétur Kristjánsson GÍ á 38 punktum
Punktaflokkur: Pétur Már Sigurðsson GB á 39 punktum.
Í Arnarlaxmótinu urðu sigurvegarar:
Kvennaflokkur: Hrafnhildur Sigurðardóttir GL á 84 höggum
Karlaflokkur: Ernir Steinn Arnarsson GBO á 67 höggum
Unglingaflokkur: Guðmundur Shiransson GÍ á 50 punktum
Punktaflokkur: Helgi Hrafn Hermannsson GÍ á 45 punktum
Ekki var hægt að vinna til verðlauna í tveimur flokkum í mótunum.
Búið er að reikna út stigin eftir mót helgarinnar en sigahæstu kylfingarnir eftir mót sumarsins verða krýndir meistarar í mótaröðinni. Mótin verða alls 8 talsins og hægt að nálgast stöðuna hér á heimasíðu GÍ:
Sjávarútvegsmótaröðin heldur svo áfarm um komandi helgi með Íslandssögumótinu á Ísafirði og Klofningsmótinu á Þingeyri.
Deila
Guðni Ólafur Guðnason