Fréttir

Bændaglíman 2022

Það er óhætt að segja að gleðin hafi verið við völd á Bændaglímu, uppskeruhátíð Golfklúbbs Ísafjarðar, sem haldin var á laugardaginn var. Það var einmuna veðurblíða, hlýtt, logn og bjartviðri, og Tungudalurinn skartaði sínu fegursta. Kominn í haustskrúðann og víða mátti sjá glitta í eldrauð reynitré innan um birkilaufið, sem nánast hafði gullinn blæ í kvöldsólinni.

Keppnisfyrirkomulagið var Texas, betri bolti og samanlagt, svona Ryder fyrirkomulag. Hér var ekki skipt upp í Ameríku og Evrópu, heldur leiddi formaður klúbbsins sitt lið gegn formanni mótanefndar.

Á myndinni má sjá þennan föngulega hóp Ísfirskra golfara, en á hana vantar Einar Gunnlaugs og Ásgeir Kristjáns. Fjörutíu manns sem skipt var niður í tvö lið og 10 holl. Sumir þurfa á hressingu að halda í þessu móti, enda hart barist um sigur. Svo fór að lokum að liðin voru jöfn eftir níu holur. Það þurfti bráðabana en steikin frá Hótel Ísafjarðar var tilbúin og því var honum frestað fram yfir kvöldmatinn.

Það þarf miklar kempur  til að standa upp frá borðum til að fara í bráðabana. Eins og venjulega var sjöunda brautin spiluð, og ekki skorti áhorfendur til að hvetja sitt lið. Gunnar klúbbformaður og Guðjón formaður mótsnefndar öxluðu sínar kylfur og komu sér fyrir a sjöunda teig. Gunnar átti snilldar upphafshögg en boltinn lendi rétt ofan við flötina eftir fagurt boga flug; parið í höfn! En Gaui gerði gott betur og tryggði fuglinn og sigurinn var í höfn.

Golfarar skemmtu sér vel fram eftir kvöldi og óhætt að segja að samheldni og vinskapur hafi ríkt í hópnum. Formaður kallaði fram og veitti viðurkenningu til ofur-sjálfboðaliða klúbbsins, Finns Magnússonar og Tryggva Sigtryggsonar, en Reynir Pétursson var fjarri góðu gamni, enda í bullandi vinnu fyrir klúbbinn að gata púttvöllinn við Hlíf. Þeir tóku við gjöfum sem virðingavott frá stjórn klúbbsins.

Nú eru nær öll golfmót að baki þetta árið en golfara munu nýta veðurblíðuna meðan hún endist til að spila golf í Tungudal. Síðan tekur Sundagolf við með möguleika á að spila velli í fjórum heimsálfum. Þar er alltaf sól.

Gunnar Þórðarson


Deila